//aldís&erla&ásta
01.08.2007 16:37:38 / aldis

Parí..

Hæj :D

Afmælið hennar Ástu var um helgina eða á laugardaginn til að vera nákvæm. Við Erla komum um 10 leytið minnir mig til Ástu en við höfðum verið að gera okkur til heima hjá Erlu. Þegar við komum til Ástu voru minnir mig Carlos og Signý komin. Síðan fór fólkið að tínast inn. Fyrst var spilað póker sem held ég flestir strákarnir voru í. Við hin vorum að stríða Erlu ;)
Það voru teknar einhverjar myndir en ég veit ekkert hvar þær eru :S :haha:
Svo seinna um kvöldið fórum við í kveðjupartý til Gumma en vorum þar kannski rétt svo í rúman hálftíma :D Fórum svo aftur til Ástu og man ekki alveg hvað í ósköpunum við gerðum þá. Svo fór ég bara heim. 

Við stelpurnar búnar að vera að vinna eins og brjálæðingar og ég fékk heilan helling útborgað :) Miðað við hvað ég er í hryllilega leiðinlegri vinnu :S Svo er það París á morgun... Langar svo ekki en ætli það verði ekki gaman úti. Er búin að plana að hringja í alla snemma um morguninn á sunnudeginum og væla yfir því hvað það er hryllilega leiðinlegt hjá mér úti :haha: Er búin að ákveða það líka að ég mun ekki eyða meira en 20.000 krónum og ég á eftir að eiga erfitt með það :haha: :D
Kem heim eftir viku, sem sagt mjög seint á fimmtudagskvöldinu eftir viku :) Missi þá af skólasetningunni sem er um morguninn á fimmtudeginum og svo byrjar barasta skólinn á mánudaginn. Birta loksins að koma í skólann svo það verður frábært og Geiri er búinn að lofa því að halda uppi ruglinu í frímínótum :S 

Viva la Revolution ;)

-Aldís :P

 

 

http://newcastle.gumtree.com/posting_images/11/8502811__1173554853__1__1-b633b803b5ff54d49f59d86a6184d768.__big__.jpg
Bíllinn hennar Erlu :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 21:59:54 / ásta

Makeover!! :O

Allt í lagi við viðurkennum að þessi síða er ógeðsleg og er alveg að fara að drepast! Þannig að þar sem að ég hef nákvæmlega ekkert að gera veik heima þá hringdi ég í Ástu og við ákváðum að lífga þessa síðu við :D  En fyrst aðeins hvað er búið að gerast seinustu vikurnar.. eða mánuðina..

Stelpurnar kláruðu skólann – Ásta féll í íþróttum.. á mætingu:$
Aldís kláraði skólann
Ásta fór til Boston.. koma myndir þaðan :D
Erla átti afmæli – Aldís hélt þetta geðveika partý fyrir hana.. gleymdist að taka myndir :/
Erla komin með bílpróf ;)
Erla búin að kaupa sér bláan ’99 model golf, beinskiptan, fimm dyra! ;) :D
Carlos fór til USA, ooooog hann kemur heim á moooorgun!!!!! :haha:
Carlos og Ásta – 7 mánuðir <3
Aldís fékk sér myspace :o – þetta var djók, en samt ekki djók því hún FÉKK sér myspace!;)
Rakel og einn 27 ára eftir svaka djamm – Rakel.. ekki lemja aldísi :$
Aldís fékk vinnu í Bónusvídeó og er brún og sæt eftir blómahópinn, annað en Erla & Ásta!
Bjartey með kórnum úti á Spáni at the moment!
Ásta orðin 17 lííka! :haha:
Ekki komin með bílpróf...
Ekki NÁLÆGT því að vera búin að kaupa sér bíl!! – oooog ekki Aldís heldur :$
...Það hefur kostað lengur að vera við, heldur en að vera Erla! :P
Ásta hélt uppá frændsystkina afmælið viku fyrr, fékk 22.500 + singstar nýja! :D
Ásta, Erla & Fríða fóru á Pizza Hut í tilefni afmælisins (Aldís veik heima greyið :()
Aldís&Erla byrjaðar að wörka golfið! ;) :’)
Signý STAL sólgleraugunum hennar Aldísar!!! 8|
En er búin að skila þeim núna :)
Eeeeða Siggi gerði það ... 8)
Aldís fékk póstkort frá Bandaríkjunum sem syngur “I can’t get no...satisfaction!”
Ásta er erfið og hún veit það!! :?
Aldís var að uppgötva þennan kall “:?” .. og hún fór að pissa.....
Aldís skoðaði þessa setningu hér fyrir ofan.. hló og sagði “Strokaðu þetta út...”

Við neeeennum ekki að blogga meir, ætlum að fara að horfa á Runaway! :o
-

 

The image “http://www.splutphoto.com/100%20Shot%20Browser/images/spike.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.  Byyyye –

Byyye, byyyyye BIRDY! :haha:
 

-Aldís & Ásta ...      

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 01:52:29 / aldis

Færsla

 

Djöfull er etta fokkin falskur gítar..

 

» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 00:39:12 / ásta

Bústaðurinn maður!! :D Besta ferð í heimi! :D

Vá.. alveg vika síðan við komum úr bústaðnum við stelpurnar og NÚNA er fyrst verið að bloggah! :o :D

Ég ætla að taka mig til núna og blogga örlítið skemmtilegt blogg um þessa ferð!:D

Hún byrjaði þannig að Aldís sótti mig um að verða 5 leytið minnir mig, við pökkuðum matnum og mínu drasli í bílinn og ég settist í shotgun! ;)
Sóttum svo Erlu heim til hennar, fundum til dótið hennar og fórum svo aðeins uppí Fjarðarkaup að kaupa smá veganesti ;).. Maður verður að hafa eitthvað til að mússa á leiðinni... eins og Aldís orðar það :D

Then we were on the road! :D .. Ég gerði oooogguponsumistök þegar við vorum á leiðinni útúr bænum...áttujm að keyra beint áfram en ég sagði óvar: "HÆGRI!".. og þá beygðum við í átt til Þorlákshafnar :$.. En það reddaðist... þegar við vorum búnar að keyra aftur á Litlu Kaffistofuna hahahah :') Soldið löng leið til að leiðrétta mistökin :$

Svo var þetta allt í góðu, ég var með "Gott Veður" playlistann minn í gangi, þar til við meikuðum ekki lengur truflanirnar sem fylgdu því að hlusta á iPodinn á Þjóðveginum.. eitthvað lélegt samband víst :lol: ..
Hlustuðum þá á mix-diskana hennar Aldísar+Justin Timberlake! 8)

Þegar við vorum komnar uppí bústað byrjuðum við auðvitað á því að afferma bílinn, koma öllu inní ísskáp og svo fórum við Aldís í það að þrífa pottinn og láta renna í hann fyrir kveldið! ;)
Það voru svo hamborgarar og pulsur í matinn :) ég eignaðist vin... hann heitir Sæmundur ;) og þið getið kíkt á hann hérna í myndunum í Aðalvalmynd :haha: !
Eftir mat skelltum við okkur bara í pottinn og vorum þar í like, 4 tíma or some:D.. fórum svo inn að horfa á Herkúles hahah:D en ég meikaði ekki að horfa á mikið af því, var svo fokking þreytt!...en Aldís&Erla horfðu á hálfa myndina or so og fóru svo bara að sofa :)

Á laugardeginum vöknuðum við Erla um 12 leytið...en þá var Aldís löngu vöknuð og búin að fá sér morgunverð ;).. fórum bara að spila Rommí.. sem var btw spil helgarinnar!! :haha:
Svoooo fór Erla bara að lúlla um 2 leytið eða eitthvað.. og ég og Aldís kíktujm útí sólina..svo fór Aldís að kúra aðeins hjá Erlu og ég varð eftir úti í sólbaði! Fékk góðan lit og læti! :D ... Á meðan var verið að láta renna aftur í pottinn og þegar hann var orðinn mátulega heitur náði ég í Aldísi og við fórum í gott sólbað þar í klukkutíma.. svo vaknaði Erla.. kom veeeerulega FRESH út til okkar hahah :D
Fórum svo eitthvað inn bara, spiluðum og ég var með eitthvað illt í maganum svo ég lagðist inní rúm og hvíldi mig smá..
Ég sleppti þessari dýrindismáltíð sem stelpurnar elduðu sér... kjúllabringur og eitthvað fleira meðlæti ;) .. Það sem ég fékk í matinn þetta laugardagskvöld var bara goslaust kók sem Aldís píndi ofaní mig..! : "Þetta fer betur með magann á þér! Svona! Drekktu þetta bara!!" .. hahaha :D

Svooo var það meiri pottur um kveldið.. og sumir voru í símanum aaaallt kveldið nánast!:D.. Við Aldís létum vel i náttúrunni seinna um kveldið/nóttina! ;D hahaha.. létum vindinn svoleiðis leika um okkur :')
Erla var á myndavélinni þann partinn ;D
Eftir pottinn skelltum við okkur inn, horfðum held ég aftur á Herkúles or some ..  og fórum svo að sofa... :)

Á sunnudaginn vaknaði ég fyrst... við það að mamma hringdi í mig um 1 leytið.. ætluðum sko að reyna að leggja af stað heim kl 3... ég fór fram, tók aðeins til og vakti svo stelpurnar.. :P þær elduðu sér sveitta hamborgara og svo fórum við Aldís aðeins út í góða veðrið á meðan Erla fór í sturtu... Aldís las fyrir mig uppúr Synir Duftsins (ég ætla btw að redda mér þessari bók áður en ég fer til Boston, og lesa hana í flugvélinni! ;) þó ég viti endinn núna ;D )
Geðveikt spennó bók sko!!! 8|
Svo fórum við bara að taka til og svona... taka okkur til í andlitinu, ryksuguðum og pökkuðum öllu niður.. skrúfuðum fyrir vatnið og allt klárt.. lögðum af stað ekki fyrr en að verða 5 held ég :') hahaha .. ekki nógu raunhæft markmið greinilega, að reyna að leggja af stað kl 3 :D hahah.

En ferðin heim gekk bara vel, komum við á Mærunni, sem er lítið krúttleg sjoppa í Hveragerði.. :D Erla keypti sér sjeik og ég keypti mér harðfisk og nammi-hringi (eins og í Norbit..) einn handa mér og einn handa Carlosi, og Erla kallaði okkur gömul hjón ;'D!
Svo fórum við bara áfram heim.... þá var ferðinni bara lokið! :D

En þetta var snilldar helgi, ábyggilega ein sú besta sem ég hef upplifað!:haha:
Þakka ykkur fyrir helgina stelpur ;** Elskykkur ! <33

-ásta*


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 12:52:35 / erla

bústaður :)

bleble ;)
blogg ? :D
jaaa held það sko :!:


var í nát103 prófi í dag 8)
gekk líka bara svona ágætlega :)
og þá á ég bara 1 próf eftir :!::haha:
sem er auðvitað enska:P
og svo sumarfrí :!::D
... og vinna :P

svo bara bústaður á eftir :!::haha:
koma þá loksins einhverjar myndir :$
hmm ætti að fara að pakka ? 8)
en ég nenni ekki alveg strax :P
svo kaupa mat ;)

vonandi verður svo gott veður 8)
en held það verði rigning ? :(
ásta að tala um það :S


jáá og það verður horft á eurovision :P
þótt ísland komst ekki áfram :cry:
haha ásta ræður :P


hmm komið ágætt? :D
nenni ekki meira 8)
//erla :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:14:44 / aldis

Blogg frá Aldísi. Hvað er að gerast við heiminn?

Ég held ég bloggi því að ég er eitthvað svo ódugleg núna við það og er svo í viðbót í leiðinlegum dönskutíma svo ég held að það sé í lagi að ég bloggi aðeins.  

Seinustu vikurnar eru búnar að vera æðislegar. Tjaldferðin mikla, grill og smá chill hjá Steinþóri :D Við horfðum á Jacket sem er bara snilldarmynd!! Svo má ekki gleyma Pendulum :D :D :D Snilldartónleikar ;) náði samt ekki miklu af tónlistinni. Ingi sá til þess :P Hitti svo Elísabetu á Pendulum og það er alltaf jafn gaman að hitta hana, þvílíkur snilldarkrakki sem hún er ;) Hitti svo víst Tobbu líka en man ekki mikið eftir því :S Svo var chill hjá Ástu kerlingunni. Það var fínt. Byrjuðum á að kíkja til hennar og fórum svo uppí voga til Skara og Asmírs. Sátum í bílskúrnum hjá þeim þangað til mamma hans rak okkur út og þá var stefnan sett beint á Ástu aftur. Þegar við komum þangað var gestgjafinn orðin pínu full ;) Pínu vesen með Carlos en Ásta er löngu búin að jafna sig á því. Lövjú stelpa ;**Svo er búinn að vera fótbolti öll kvöld núna uppá síðkastið. Alltaf jafn gaman og Höddi kallinn stendur fyrir sínu með brandarana. Og ekki má gleyma hvað við Danni höfum verið dugleg að læra ;)  

Svo er föstudagur í dagur sem þýðir að helgin öll er framundan. Efast um að ég geri annað en að læra og passa Hugrúnu og Sindra sem verða hjá mér alla helgina og á mánudaginn líka :D Lokaprófin framundan og svona. Fékk svo vinnu áðan í Blómahóp í bæjarvinnunni. Þá verð ég að vinna í Krónunni og Bæjarvinnunni með Birtu sem að verður BARA GAMAN :D Elska þennan krakka :D  

Svo vil ég aðeins tala um hvað það er mikið rugl að láta okkur læra Biology. Við eigum aldrei eftir að nota vitneskjuna um frumur og dreifkjörnunga í framtíðinni. Aldrei. Og afhverju að kenna okkur þetta á ensku?? Halló þetta er ekki að gera sig. Hypothesis og eitthvað svoleiðis kjaftæði. Við erum íslensk og viljum íslenskt já takk!!  

Vil enda þetta á litlu ljóði sem við Dótla sömdum handa Engli (Daníel) í bekknum okkar:  

Elsku litla ástin mín,
Þú sem ert svo sætur.
Komdu hingað yfir til mín,
Svo mér hlýni um hjartarætur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 11:16:14 / ásta

Looooong time no blogg from me? :$

Hi peeps!

Þúst, það er alveg úúúúber langt síðan ég bloggaði, bæði hér og á minni síðu :S Þannig ég ætlaði bara rééétt svo að koma með smá hérna.

Ég er í íslensku hérna með Fríðu, stal tölvunni hennar til að blogga smá :P:haha:! Í gær gisti ég hjá Carlosi, vöknuðum um 12 leytið og ég fór bara að gera mig ready. Vorum að fara í fermingu hjá frænda hans á Grand-Hotel :). Það var alveg gaman sko! :D .. vorum bara að chilla með Sverri frænda hans, og hitti svo Gyðu gangavörð ;) hún er frænka Carlosar :P .. og hún hótaði mér skoh! omgs ég var hrædd....or not.. :) Hún sagði eitthvað: ef þú verður ekki góð við hann hérna (og horfði á Carlos) þá ertu bara *dró puttann svona lárétt yfir hálsinn á sér=dead!* hahaha:D..

Svo þegar ég fór og fékk mér að éta þarna í fermingunni, þá var náttla bara hlaðborð like always.. og einhver lítil stelpa bara stóð hjá mér og staaarði á mig og sagði svo: Flottur kjóll sem þú ert í :$ :) og ég bara: aww takk!:haha: þetta var voðalega krúttlegt! :D

Eftir ferminguna fór ég bara heim með Carlosi, en m&p hans fóru í aðra fermingarveislu útá Ásvöllum. :) Við vorum bara að chilla eitthvað, svo kom Vignir og sótti mig um hálf 9 leytið :).

Um kveldið fór ég svo á rúntinn með Sævari, Brynju kæró og Nóra:) Ótrúlega langt síðan ég hitti Sæbba og Nóra svo.. :P Við fórum bara á Laugarvegsrúnt, fórum í einhverja ísbúð sem heitir Ísbúðin or some ;) frumlegt nafn finnst ykkur ekki!;):D Nóri splæsti á mig "gamlan ís" sem er víst ekki rjómaís og ég fékk þúst, miðlungs með dýfu...ætlaði fyrst að fá stóran en konan sagði: já veistu, ég get ekki dýft stórum ís...enda ekkert skrítið.. ég fékk miðlungs og hann var alveg huuuuuge!!!!! :D

Þau skutluðu mér svo bara hjem :) ég fór bara að horfa á Friends og svo að sofa :)

Ég fer bráðum að blogga á /astan líka, bíðiði bara ;) þetta kemur allt :D

-ásta*


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 08:42:54 / erla

Ferming ? :)

Hæææ :) 

Þá er loksins komið páskafrí :!: 
- sem þýðir enginn skóli á morgunn :)

...en fer bara að vinna í staðinn :S:P

 En allavega .. er það ekki bara helgin ? :) 
 -fyrsta helgin í páskafríinu ?
...sem þýðir að það sé bara vika í páskana ! :o

 Á föstudaginn var bara skóli, vinna og svo bara engin æfing ? sem var reyndar alveg ágætt :P það var víst einhver leikur á ásvöllum ! en svo hitti ég aldísi :D fór aðeins með henni til ömmu hennar og afa :P og vorum svo bara eikkað að rúnta og eikkað fullt :) 

Svo á laugardaginn var farið í vinnuna ! sem var svosem alltílagi :) var bara að vinna til tvö :) og fór beint heim að pakka inn fermingargjöf :D og svo í sturtu og gera mig ready :) og svo loks var farið í fermingu :D hún Gunnhildur að fermast :) jáá og ætli það hafi ekki verið ágætt :) bara svona eins og fermingar yfirleitt :)
svo um kveldið var bara slakað á :P pakkaði inn fermingargjöfinni hans Egils :) og ég var svo vond og vildi ekki leyfa honum að opna hana þá ! hann varð bara að bíða .. og var held ég alveg sáttur með það :)

Fanney hringdi nú samt og bauð manni í partý hjá Sögu ? sagði að ásta og carlos væru þar.. en mamma&pabbi voru að fara að sofa fljótlega og ég þreytt þurfti að vakna svo snemma í dag.. þannig ekki varð neitt úr þvi að fara þangað :S:P en það er bara þannig :)

 Svo komu úrslit úr kosningunni um stækkun álversins í ljós :)
-og það voru 88 fleiri sem kusu nei :!:
-hvað ætli gerist núna ? :P

 En í dag, sunnudaginn 1.apríl þá fermdist Egill bestasti og uppáhalds bróðir minn:D

 

      Sætur :*

 En dagurinn byrjaði snemma vorum mætt uppí kirkju kl.10 :o athöfnin byrjaði samt ekki fyrr en hálf 11 ! og hún var bara ágæt ! svoldið löng :S voru líka 31 krakkar/unglingar ? :P að fermast. Vorum svo komið heim um svona hálf eitt eða eikkað:)

Þá var bara farið heim að klára að gera allt tilbúið og svona :) var boðið kl.4 og var veislan bara heima :) hún var bara fín .. borðað mikið af kökum og einhverju svona óhollu ! :o:haha: en það er allt í lagi :P en nenni ekkert að fara að segja eitthvað sérstaklega frá veislunni :P og svo fóru seinustu gestirnir um svona hálf níu :) sem var bara ágætt :P

en nú er ég orðin þreytt ! ætla að fara að hjálpa mömmu að ganga frá eða eitthvað :) og horfa svo kannski smá á imbann og  fara svo bara að sofa :D
bææjó :D

 

//erla :* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 04:02:49 / aldis

17. mars :D

Blellahh Konz.. :)myspace layouts, myspace codes, glitter graphics 

Ég ætla að blogg aðeins og segja ykkur frá vikunni.

É
 g man ekkert hvað ég gerði seinasta föstudag. Á laugardeginum var vinna og svo fóru ég, Eyja og Steinþór til Hödda. Vorum þar eitthvað svo skutlaði ég og Elva Eyju heim og þá hringdi Davíð. Fórum til Sigga stutt.. Fórum svo heim til mín til þess að horfa á Alpha Dog..
 

sunnudaginn var vinna, læra fyrir próf og fór í bíó með Birtu. Ætluðum á Orbit en það var röð að dyrum í smáralind svo við fórum í Álfabakka. Og já við hittum Jón Egil. Það var ógeðslega gaman að hitta hann aftur :D fórum á Music & Lyrics og Birta hló svo hátt að ég hló bara að henni allan tímann :P Og líka rendar að einhverjum fullum gaurum sem hlógu að atriðum sem voru ekkert fyndin :D 

 Á mánudaginn.. Man ekki.. Jú það var bara próf um morguninn. Held að ég hafi farið á rúnt með Birtu um kvöldið.. er samt ekki viss... :D Á þriðjudaginn: Man ekki :/Miðvikudagur... próf :S já og elva, tanja og sibba komu heim til mín um kvöldið :DFimmtudagur: heima..... fór með Birtu á rúnt. Við skutumst uppí Jolla og eitthvað.Í dag er ég bara búin að liggja heima og gera nákvæmlega ekki neitt :O kemur alls ekki á óvart Hehhehehe :D – Vonandi gekk öllum vel í prófinu í dag ;) 

Ég veit ég fór einhvern tímann út með Erlu í vikunni.. held það hafi verið á þriðjudaginn :/ Man ekki :P 

Við stelpurnar ætluðum í sumarbústað núna um helgina en því miður þurftum við að hætta við það vegna ýmsa ástæðna... við höfum bara gaman í dag í staðinn ;)Svo ætlum við að velja einhverja góða helgi núna fljótlega og skutlast í sumarbústað og hafa ýkt gaman :D  

En árshátíð á morgun og svo verður haft gaman í kvöld. En vá hvað ég hlakka til að fara á árshátíðina.. ég og Birta ætlum að haga okkur eins og fábjánar. :P Eins og við gerum alltaf hahahha :D En kaupaáss árshátíð er málið :D :D :DVið Erla ætlum svo uppi skóla í kvöld að horfa á söngvakeppnina sem að verður mjög líklega snilld :D veit samt ekki hverjir keppa en vonandi ætlar engillinn minn að syngja :D

 -Aldís ;)  myspace layouts, myspace codes, glitter graphics    

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 19:02:05 / erla

10.mars :)

Hæææ.. :)

 

Maður er alltaf jafndugleg að blogg :)

Hef bara því miður ekki frá svo merkilegu dóti að segja :P
En hvað er ekki málið að segja frá hvað maður er búin að vera að gera eða ? :) 

Föstudagur ::

þá var farið í skólann eins og alltaf :) en svo kom mamma að ná í mig og skutlaði mér, önnu og andreu í vinnuna :P og það var stuð þar eins og alltaf :) fékk svo far hjá önnu uppá ásvelli .. átti að fara að keppa við ÍR .. en nei leiknum var frestað ! sem var ömurlegt. þannig í staðinn var bara æfing og við mættum 6 á æfingu ! svo um kveldið var bara slakað á og horft á imbann :D sem var bara fínt ;) 

Laugardagur ::

jáá í dag þá var sofið til hálf 11 :) sem er alveg ágætt miðað við að mæta venjulega í vinnu kl.10 :P en í dag var engin vinna :) eva að vinna fyrir mig.. þar sem maður ætlaði auðvitað að fara á bikarleikinn :D og það var nú bara gaman :) þar sem þær unnu :!::D sem var náttla bara geðveikt :D  ... svo var farið með rútunni uppá ásvelli eða strætó í þessu tilfelli :) þar var eitthvað fólk.. ekki mikið en eitthvað :P stoppuðum nú frekar stutt þar :) svo keyrði mín heim :D .. þarf að æfa mig kannski að bakka ? :$ klesti nú samt ekkert á :) var bara lengi :S en pabbi kennir manni á þetta ;) en ásthildur kom með heim í smá stund.. fór svo að vinna :) og maður var búinn að lofa að fara að kíkja á hana ;) .. en núna er ég bara eikkað að nördast í tölvunni :P 
 

Sunnudagur ::

jáá á morgunn ? þá er ég að fara að keppa .. og mæting kl. Hálf 1 uppá ásvelli :S sem er ömurlegt :!: fæ aldrei að sofa almennilega út :(
jaa eftir leikinn hvað svo ? læra eða bara gera ekki neitt eða eikkað ? :) ég veit ekki alveg :D kemur í ljós :) en svo fer maður nú á bikarleikinn hjá strákunum á morgunn :D held að hún ásta láti meira að segja sjá sig ? :o enda bróðir hennar að fara að keppa ;)

 

 

En vóóó nenni ekki að blogga meira !
Vonandi nenntuði að lesa þetta :D
//erla :*

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 17:21:30 / aldis

Bílprófið komið :P

Það er held ég þokkalega komið að mér að blogga.. Á fimmtudaginn fyrir viku fékk ég bílprófið :D Þvílíkt frelsi! Þú ferð þangað sem þú vilt fara og gerir það sem þú vilt :) Bílprófið sjálft var mjög svo stressandi :S En það gekk alveg ágætlega held ég bara :D fékk allavega prófið :PÁ föstudeginum var bara þægilegur skóli og svo rúntur um kvöldið með Erlu og Óskari og hittum meðal annars Frikka, Sigga, Davíð Haralds og vini Óskars. Við Erla vorum samt komnar heim um 2. Laugardagur: bæinn með Erlu, vorum að leita að kjól fyrir árshátíðina, fórum svo og náðum í Dag og fengum okkur að borða á KFC ;) hittum Didda og fórum svo í bió á Ghost Rider held ég hún heiti.. Hún var fáránleg en samt skemmtileg :D Svo náði ég í Óskar og svo í Didda og við þrjú fórum í langan bíltúr :P

Á sunnudeguinum svaf ég næstum allan daginn og man svo ekki hvað ég gerði um kvöldið. Ég get svo svarið að ég man alls ekki hvað ég gerði alla vikuna en ég veit að einhvern tímann náði ég í Elvu og við fórum á rúnt og fleira skemmtilegt en man svo ekki mikið. Jú á miðvikudaginn varð ég veik :( á fimmtudaginn og í dag.

  En í gær var Árshátíð Flensborgar. Ég komst ekki vegna veikinda minna en Erla og Ásta fóru. Ásta hélt fyrirpartý heima hjá sér og þær áttu báðar nóg af áfengi.. Hahahha kvöldið endaði ekki eins vel og ég bjóst við en þetta fór vonandi ágætlega :D  Oooog á morgun er Incubus!!!! Vá ég hlakka til :D Carlos verður driver og við förum allar stelpurnar nema Bjarteuy :( Á sunnudaginn er svo hundasýning...Helgina eftir það er vinnan og helgina 16. – 17. mars er sumarbústaður :D Oooog svo rúsínan í pulsuendanum er londonferðin frá 22. – 25. mars og það verður bara gaman :D:D:D   Er að reyna að plata stelpurnar til þess að hitta mig í kvöld svo ég eigi einhvern séns á að fá þessa afmælisgjöf?? Erla er búin í vinnunni um 7 og Ásta er í Smáralind með Carlosi og mömmu hans.. Krúttlegt ég veit :D Komið nóg held ég :D kommentið ef þið nenntuð að lesa þetta :P

-Aldís ;)

          

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 20:00:43 / ásta

Aldís elskan ;**

Hæ. :D

Í dag var það skúlen. Mæting kl 9.10 hjá mér ;)... Frí í þýsku sem var í 2.tíma því það var sjúkrapróf í kaflaprófinu...:) Jah, það var ekki beint frí samt.. Siggi Þýskukennari sagði okkur hinum að fara inná bókasafn og læra eitthvað tengt þýsku:P Eeeen allir vita hvað "bókasafn" þýðir.....FRÍ!:haha:

Ég var bara eitthvað að chatta við Sibba kjellin í eyðunni minni :). Voða gaman.. Fékk að frétta það að hann Geir hafi dáið (áfengisdauða) á Grímuballinu sem var fyrir Hraðbraut á Pravda í gær! :') Hehehehe, þá er hann búinn að ná að minnsta kosti EINU af takmörkunum sínum í lífinu;):D. Svo vann hann víst titilinn "Besti búningurinn". Hann var í tútú-inu, og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það BLEEEEIKUR ballettbúningur sem Lalli frændi minn saumaði á sjálfan sig.. og hefur hann gengið í ættinni á milli frændnanna. Geir vann þennan líka flotta Samloku-Motorola-síma! :o Til hamingju með þetta Geir minn ;*

Eftir skóla kom ALDÍS og SÓTTI okkur Erlu!:D Hún var í verklega prófinu  í dag og náði auðvitað þessi elska!!!:haha: :** Til hamingju með það sweetypie <3 Mí löööövs jú... og Erla líka....segjum það bara:$ hahaha.. neinei ;) auddað hún líka :D
Hún skutlaði Erlu heim og mér til Lollu minnar sem var að koma hjem frá Flórída í dag!! :o Váá, búin að sakna hennar maðuuuuur! :D :* Fékk að skoða allt dóteríið sem hún keypti sér og fékk líka jólagjöfina mína:haha:! 2 bolir úr Hollister!:haha::haha:! Mí só happy náw! :D hahahaha. Einn er bleikur og hinn er svona hálf grænblár :P Svo fékk ég Piglet-merki, Djellí-stæææl ;):haha:. Takk fyrir þetta Lovísa Þórunn mí löv! :* Og vertu velkomin heim á Klakann góða..

Síðan fór ég frá Lollu til Erlu og ætluðum að pakka inn seinbúinni afmælisgjöf til Aldísar ;) Samt alveg 2 vikur síðan við keyptum hana :D .. haha.. Eeen það var ekki til nægur pappí né límband svo við töltuðum útí Tjellevu (Aldís....ertu að ná þessu með TjeLLevu;)?) og ætluðum að versla það þar.. fórum að tala um páskana og páskaegg á leiðinni þangað og um LEIÐ og við gengum inn sáum við bara PÁSKAEGG!!!!8|....svo við splæstum í eitt egg hvor nr. 3 :D Nóa Siríus ;). En þau þarna seldu víst ekki pappír NÉ LÍMBAND!:o Hugsa sér! Að Tjellevu selji ekki eitt motherfucking límbandsstykki!!!! .. Asnalegt *pff*
En keyptum allavega egg og Erla fékk sér Kristal+ og heilsunammi... ég fékk mér egg og annað :).

Fórum hjem til Erlu og redduðum pakkanum bara :). Flottur pakki sko.. og SNILLD hvernig við redduðum þessu án límbands:haha:. Reyndar var það hugmyndin hennar Elvu ;) en samt....
Pabbi sótti mig svo og ég fór bara hjem. Amma og afi voru í heimsókn og ég bauð þeim smá páskaegg. Mí ist sóó gjafmild:$:haha:.
Fór svo í tölvuna, chatta við Binna Rúnar á msn.. Svo hringdi Aldís í mig og hún var víst í kræsis að finna sér föt til að fara í í leikhús í kveld. Svo hún sótti mig, fór með mig heim til hennar, ég hjálpaði henni að velja föt og svo skutlaði hún mér aftur heim. :D Hún er bara massagóður driver;).

Carlos fer svo að koma að sækja mig, hann er búinn að vera að meeeeikaða í counter í dag....held ég....hahahaha...:$:lol:. En hefur tíma núna til að leigja spólu með mér og Binna Rúnari. :D Hehehe, ég ætla bara að fara að tjútta mér af stað.. gera mig ready and so on ;). Hope you've enjoyed this blog of mine 8).... if not..... well ... to hell with 'yall!:klikk:

-ásta*

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 15:12:22 / ásta

Café Cultura :D

Bleeessuð veriði.

 

Þessa helgi má segja að ég hafi verið í "pössun" hjá Carlosi&fjölsk. :p Á fimmtudaginn fórum við Erla&Carlos í sund. Erla var voooða jollý og var að meikaða í rennibrautinni og svonah:D.. Carlos líka:$...
Ég fór svo bara hjem eftir sundið, en nennti ekki að vera ein heima, komin með ógeð af því þar sem m&p voru ennþá á Ítalíu. Svoo ég fékk Carlos til að bjóða mér gistingu:D.
Vöknuðum bara fersk í skólann á föstud... Ég sleppti 3 síðustu tímunum vegna fkn dúndrandi ógeðslegra túrverkja :(:( Ég fór bara og svaf í sófanum uppi í 2 tíma þar til Carlos var búinn. Fórum til hans og ég svaf bara heeeiilllengi! Vaknaði alveg eitthvað en svaf til alveg hálf 9 or some!8|..
Um kveldið fórum ég, Carlos&Dabbi Sund eitthvað hejm til mín, þar var soldið af fólki í gúddí fíling ;) .. Kíktum svo á Áttuna og vorum rekin þaðan út :lol:.. svo var það bara rúntur og eitthvað.

 

Í gær, laugardag var sko GAAAMAN!! :haha: Ég, Davíð Örn, Pétur & Carlos fórum á Salsakvöld á Café Cultura. Þar var bara dansað og drukkið og haft funnen sko!:D Einn samt voooða creepy gaur þarna! :S .. var eila hálfhrædd við hann sko:S:S.
Við vorum þarna frá svona 12 til hálf 3:haha: Fórum svo bara að skutla Pétri heim, vorum stoppuð af löggunni á leiðinni: "Góða kveldið, við erum bara að fylgjast með ölvunarakstri, ég ætla að fá þig til að blása kröftuglega inní þetta tæki, án þess að snerta með vörunum....þú hefur ekkert verið að drekka er það nokkuð?!?" hehehe:D en nei, hann Carlos var ekkert að drekka, bauðst til að keyra heim svo að Davíð gæti drukkið eitthvað ;) vorum á Dabba-bíl.

 

Við hin fórum svo bara heim til Calla að chilla, svo það gæti runnið aðeins af Dabba, svo hann yrði í góðu lagi til að drive-a hjem. Dabbi fór líklegast heim um 4 leytið, þá fórum við bara að soooofa :D.

 

En vöknuðum bara um hálf 2 núna í dag. Þá var etið, skellt sér í sturtu og svo erum við headed towards my house now... Þarf NAUÐSYNLEGA að skipta um föt!8|8| ógeðsleg reykingastybba af fötunum mínum :S.. Ætlum að kíkja svo á Davíð Örn í vinnuna, síðasti vinnudagurinn hans í Max raftækjavörum í dag ;).

 -ásta*

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 01:20:36 / erla

loksins :)

hææ :)

ætli maður bloggi ekki bara um síðustu daga ?
svona eins og alltaf.. :$

allavega þá er maður alltaf að gera það sama bara :S:P hehe:)
í vikunni var ég nú bara í skólanum, horfa á hm, æfingum og gera eikkað með stelpunum eða eikkað sniðugt :D ekkert eitthvað merkilegt ;)

mamma og pabbi komu svo í gær :D
eftir að hafa verið í 2 vikur í þýskalandi! :);)
ágætt að fá þau heim :) hehe :D

 

En allavega á föstudaginn þá var bara farið í skólann eins og vanalega :)
og svo í vinnuna eftir það :) anna skutlaði mér og andreu uppí fk ;)
afi kom svo að ná í mig og fór svo til ömmu&afa að borða. :P
amma skutlaði mér svo um hálf 9 uppá ásvelli ;)

Var ekki að fara að keppa fyrr en klukkan 10 :!:
en áttum að mæta snemma ef við gætum byrjað eikkað fyrr.. :)
sem við gátum ekki.. byrjuðum bara seinna ef eikkað er. :S
við kepptum við haukar2 eða 4fl. stelpurnar..:)
alveg fínn leikur :D unnum :) rúst ?

 

eftir leikinn skutlaði eva mér svo heim :)
og ég&egill vorum svo bara að bíða eftir að mamma&pabbi kæmu.:)
amma&afi ætluðu líka að heilsa upp á þau ..en gáfust upp á því að bíða :)
og svo kannski svona 5-10mín seinna komu þau :) haha :)
komu ekki fyrr en svona hálf 2 :P

Í dag eða gær ?? allavega á laugardaginn :)
þá vaknaði maður bara sprækur og mætti í vinnuna kl. 10 :P
eftir vinnuna komu mamma&egill að ná í mig :)
svo fórum í afmæli til hennar gunnhildar :)
ég var alveg klædd í tilefni við það :) hehe :D
en meina það þurfi ekkert að vera spariklæddur.. :P
svo var mér allavega sagt ;)

 

jææja ekki bara komið fínt ? :)
segjum það bara ;)

//erla :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 23:15:57 / erla

nýjar myndir ?

jújú mikið rétt :)
nýjar myndir :D...á leiðinni.. frá bæði fyrirpartýinu fyrir grímuballið og frá maturboðinu hennar Aldísar :* sem var haldið í tilefni afmæli hennar :*;)

held ásta setji sínar á eftir eða morgunn ? 
en batteríð í minni myndavél er því miður búið.. þannig set mínar f
á
u myndir á morgunn :D og ásamt því ætla ég að blogga ? :o jújú.. maður er svo sprækur.. en ekki í dag..á morgunn ;)

//erla :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Leitarbox